Getum við aðstoðað?

Almenni og Lífsverk hefja sameiningarviðræður

26. mars 2025

Almenni og Lífsverk hefja sameiningarviðræður

Stjórnir Almenna lífeyrissjóðsins og Lífsverks lífeyrissjóðs hafa undirritað viljayfirlýsingu um að hefja formlegar viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Markmiðið er að kanna hvort sameining bæti hag sjóðfélaga og styrki starfsemi sjóðanna til framtíðar.

Verði af sameiningunni yrði sameinaður sjóður fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins með heildareignir upp á 667 milljarða miðað við stöðu eigna um síðustu áramót.

Viðræður eru á frumstigi en stefnt er að því að þeim verði lokið fyrir sumarið. Náist samkomulag verður boðað til lögbundinna sjóðfélagafunda þar sem tillaga um sameiningu verður borin upp til atkvæðagreiðslu í samræmi við samþykktir hvors sjóðs um sig.

Nánari upplýsingar verða kynntar á árs- og aðalfundum sjóðanna í apríl.

  • Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins fer fram fimmtudaginn 3. apríl 2025.
  • Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs fer fram þriðjudaginn 8. apríl 2025.


Stjórnir
Almenna lífeyrissjóðsins
og Lífsverks lífeyrissjóðs