Getum við aðstoðað?

Auglýst eftir framboðum

12. febrúar 2025

Auglýst eftir framboðum

Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum til stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins. Stjórnarkjör fer fram með rafrænum hætti.

  • Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal stjórn skipuð þremur konum og þremur körlum og þriggja manna varastjórn skal skipuð minnst einum karli og einni konu.
  • Að þessu sinni eru tvö sæti karla til kjörs í aðalstjórn og tvö sæti í varastjórn, annað skal skipað karli en hitt má skipa karli eða konu.
  • Allir sjóðfélagar geta boðið sig fram til stjórnar en hæfisskilyrði er að finna í 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Framboðsfrestur er til kl. 23:59 þann 27. febrúar 2025. Framboð verða að berast kjörnefnd fyrir lok framboðsfrests til þess að teljast lögleg. Framboð skulu berast á netfangið kjornefnd@almenni.is.

Kjörnefnd Almenna lífeyrissjóðsins,
Ólafur H. Jónsson, Ingvar Júlíus Baldursson og Lára V. Júlíusdóttir

Nánar um framboð:

  • Með framboðum skulu fylgja helstu
    upplýsingar um frambjóðanda, s.s. nafn,
    kennitala, netfang, sími og heimilisfang
  •  Taka skal fram hvort framboð er aðeins til aðalmanns, aðeins til varamanns
    eða aðalmanns og varamanns til vara
  • Frambjóðendum verður boðið að kynna sig á vef sjóðsins

Hér má sjá Reglur um skipan kjörnefndar og framkvæmd stjórnarkjörs