Breyting á framlagi í VIRK
29. desember 2015
Frá 1. janúar 2016 til ársloka 2017 verður í gildi bráðabirgðaákvæði um að framlag atvinnurekenda og lífeyrissjóða til starfsendurhæfingarsjóðs skuli vera 0,10% af stofni í stað 0,13% eins og verið hefur. Launagreiðendur eru beðnir að taka mið af þessu.