Brú og Almenni vinna saman
06. mars 2025

Samstarf um séreignarsjóð
Almenni lífeyrissjóðurinn og Brú lífeyrissjóður hafa ákveðið að hefja samstarf um séreignarsparnað. Samstarfið felst í því að Brú mun benda sjóðfélögum sínum á ávöxtunarleiðir Almenna fyrir séreignarsparnað, bæði fyrir séreign sem myndast með greiðslu lágmarksiðgjalds og viðbótariðgjalds (viðbótarlífeyrissparnaðar).
Á síðustu árum hefur áhugi á séreignarsparnaði aukist, meðal annars vegna hækkunar á skylduiðgjaldi í lífeyrissjóð og auknum sveigjanleika til að greiða í séreign. Vegna þessa skoðaði Brú þann möguleika að stofna að nýju séreignardeild og deild fyrir tilgreinda séreign en niðurstaða greiningarvinnu var að slíkt væri kostnaðarsamt og óhagkvæmt fyrir sjóðfélaga. Sjóðurinn ákvað því að ganga til samstarfs við Almenna lífeyrissjóðinn sem hefur áratuga reynslu af rekstri séreignarsjóða, hefur skilað góðri langtímaávöxtun og leggur áherslu á góða upplýsingagjöf til sjóðfélaga.
Sjóðfélagar Brúar hafa eftir sem áður frjálst val um hvert þeir greiða séreignarsparnaðinn sinn. Með samstarfinu vill Brú upplýsa sjóðfélaga sína um góðan kost, en hjá Almenna er hægt að velja á milli sjö ávöxtunarleiða fyrir séreignarsparnaðinn í allt frá 100% í íslenskum innlánum yfir í 100% í erlendum eignum. Sjóðfélagar geta valið úr leiðum með tilliti til aldurs og áhættuþols og ekki er greiddur sölu- eða upphafskostnaður. Ávöxtunarleiðirnar eru: Ævisafn I, Ævisafn II, Ævisafn III, Innlánasafn, Ríkissafn, Skuldabréfasafn og Erlent verðbréfasafn.
Það er von sjóðanna beggja að þessu samstarfi verði vel tekið. Á vef Brúar www.lifbru.is er að finna upplýsingar og umsóknir um séreignarsjóði Almenna en ráðgjafar beggja sjóða veita einnig upplýsingar um samstarfið.
Hér má einnig sjá sérstaka upplýsingasíðu fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs.