Getum við aðstoðað?

Skattþrep 2025

27. desember 2024

Skattþrep 2025

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt upplýsingar um skattþrep og skattaprósentur fyrir árið 2025. Sjá frétt þeirra hér.

Persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga hækka í upphafi hvers árs sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættri hækkun vegna framleiðnivaxtar í samræmi við lög.

Tekjuskattsprósentan er óbreytt frá fyrra ári sem og hámarksútsvar sveitarfélaga. Vegið meðal útsvar hækkar um 0,01 prósentustig fyrir tekjuárið 2025 og verður 14,94%.

Persónuafsláttur á árinu 2025 hækkar í 824.288 krónur á ári (úr 779.112 krónum)  eða 68.691 krónur á mánuði og eru skattleysismörk launatekna á mánuði því kr. 227.225 krónur. Skattleysismörk lífeyristekna eru hins vegar 218.136.

Skattþrep Viðmiðunartekjur á mánuði Staðgreiðsluprósenta
1. þrep 0 – 472.005 krónur 31,49%
2. þrep 472.006– 1.325.127 37,99%
3. þrep Yfir 1.325.128 krónum 46,29%

Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.

Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa á lengra tímabil. Þetta er gott að hafa í huga við ákvörðun um úttekt séreignar.

Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 31,49% skattur af fyrstu 472.005 krónum, 37,99% af næstu 898.121 og 46,29% af öllum tekjum sem eru umfram 1.325.128 krónur.

Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í júní árið eftir. Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1. júní ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.

Nánari upplýsingar um er að finna á vef Skattsins www.skatturinn.is