Getum við aðstoðað?

Yfirlit birt

23. janúar 2025

Yfirlit birt

Sjóðfélagar Almenna lífeyrissjóðsins geta nú séð yfirlit yfir stöðu réttinda í árslok 2024 og séreignar ásamt hreyfingum á árinu. Lífeyrisjóðum ber að birta þessar upplýsingar tvisvar á ári samkvæmt lögum.

 Smelltu til að skoða yfirlit frá 31.12.2024 

Sjóðfélagar Almenna geta hins vegar hvenær sem er séð uppfærða stöðu sína hjá sjóðnum, skoðað eignasamsetningu ýtarlega og gert áætlanir á myndrænu formi sem byggja á gögnunum. Einnig má taka réttindi í öðrum sjóðum með í reikninginn.

Með því að smella á tengilinn fyrir neðan má skoða nýjustu tölur sem uppfærðar eru daglega.

Smelltu hér til að skoða uppfærða stöðu