Getum við aðstoðað?

Skrá þarf öll umboð upp á nýtt

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur tekið í notkun nýjan launagreiðendavef þar sem launagreiðendur geta sótt upplýsingar um iðgjaldagreiðslur og skráð skilagreinar. Eingöngu starfsmenn með umboð geta notað launagreiðendavefinn. Með nýjum launagreiðendavef þarf að skrá öll umboð aftur en fyrra kerfi til gefa umboð með Íslykli á Ísland.is hefur verið lagt niður. Prókúruhafar fyrirtækja verða að veita starfsmönnum sem sjá um iðgjaldaskil umboð í gegnum nýtt umboðakerfi frá Signet sem er í þjónustu Advania. Vakin er athygli á því að ef prókúruhafi sér um iðgjaldaskil þarf hann einnig að veita sjálfum sér umboð.