Almenni lífeyrissjóðurinn
Almenni lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður og hefur starfsleyfi samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
- Almenni lífeyrissjóðurinn er öllum opinn en er jafnframt starfsgreinasjóður arkitekta, leiðsögumanna, lækna, hljómlistarmanna og tæknifræðinga. Lífeyrissjóðir þessara stétta hafa sameinast Almenna lífeyrissjóðnum og greiða félagar þeirra lágmarksiðgjöld í hann.
- Sjóðurinn hentar líka þeim sem geta valið í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða lágmarksiðgjaldið og einnig þeim sem vilja greiða viðbótariðgjöld í lífeyrissjóð til að auka ráðstöfunartekjur sínar á eftirlaunaárunum.
Markmið og stefna
- Markmið Almenna lífeyrissjóðsins er að tryggja sjóðfélögum sínum sem hæstan lífeyri við starfslok, veita sjóðfélögum tryggingavernd vegna tekjumissis í kjölfar örorku og stuðla að auknu fjárhagslegu öryggi aðstandenda við andlát.
- Sjóðurinn leggur áherslu á ábyrga starfshætti og stefnir að því að vera í fararbroddi með þjónustu og nýjungar í lífeyrismálum.
- Markmið og stefnu í heild sinni, samþykkta af stjórn, má sjá hér.
Saga sjóðsins
Saga Almenna lífeyrissjóðsins nær yfir marga áratugi og eru rætur hans bæði langar og traustar. Í raun samanstendur sjóðurinn af átta lífeyrissjóðum sem hafa sameinast en á mismunandi tímum. Þeir lífeyrissjóðir sem hafa sameinast í Almenna lífeyrissjóðinn eru ALVÍB (Almennur lífeyrissjóður VÍB), Lífeyrissjóður arkitekta, Lífeyrissjóður starfsmanna SÍF, Lífeyrissjóður FÍH, Lífeyrissjóður Félags leiðsögumanna, Lífeyrissjóður lækna og Lífeyrissjóður Tæknifræðingafélags Íslands.
- 1965
- Lífeyrissjóður Tæknifræðingafélags Íslands stofnaður
- 1967
- Lífeyrissjóður arkitekta og Lífeyrissjóður lækna stofnaðir
- 1968
- Lífeyrissjóður starfsfólks SÍF, LSÍF stofnaður
- 1970
- Lífeyrissjóður FÍH stofnaður
- 1977
- Lífeyrissjóður Félags leiðsögumanna, LFL, stofnaður
- 1990
- ALVÍB, Almenni lífeyrissjóður VÍB, stofnaður
- 1995
- ALVÍB og Lífeyrissjóður Félags leiðsögumanna sameinast undir nafni ALVÍB
- 1996
- ALVÍB og Lífeyrissjóður FÍH sameinast undir nafni ALVÍB
- 1997
- ALVÍB og Lífeyrissjóður starfsmanna SÍF sameinast undir nafni ALVÍB
- 1998
- Lífeyrissjóður Tæknifræðingafélags Íslands og Lífeyrissjóður arkitekta sameinast og stofna Lífeyrissjóð arkitekta og tæknifræðinga, LAT. ALVÍB býður sjóðfélögum að velja milli mismunandi verðbréfasafna og kynnir Ævileiðina. Ævisöfn I-III stofnuð. Dagleg birting á gengi ávöxtunarleiða hefst.
- 1999
- ALVÍB stofnar samtryggingarsjóð
- 2000
- Lífeyrissjóður lækna breytir yfir í aldurstengt réttindakerfi
- 2002
- ALVÍB stofnar Ævisafn IV
- 2003
- ALVÍB og LAT sameinast og stofna Almenna lífeyrissjóðinn
- 2006
- Lífeyrissjóður lækna og Almenni lífeyrissjóðurinn sameinast undir nafni Almenna lífeyrissjóðsins
- 2008
- Innlánasafn og Ríkissöfn stofnuð
- 2009
- Almenni hefur sjálfstæðan rekstur
- 2010
- Nýr sjóðfélagavefur. Sjóðfélagar geta breytt um ávöxtunarleið á vefnum
- 2011
- Almenni býður stöðufundi, sérstaka einkafundi með ráðgjafa
- 2012
- Ævisafn IV sameinast Innlánasafni
- 2013
- Almenni er tilnefndur til verðlauna hjá fagtímaritinu European Pensions fyrir upplýsingamiðlun
- 2014
- Almenni valinn einn af fimm bestu lífeyrissjóðum í Evrópu skv IPE tímaritinu og annað árið í röð valinn meðal bestu lífeyrissjóða í Evrópu í upplýsingamiðlun til sjóðfélaga
- 2015
- Almenni opnar nýjan sjóðfélagavef. Sjóðfélagavefurinn er sá fyrsti á Íslandi þar sem hægt er að breyta um ávöxtunarleið, undirrita samninga og sækja um lífeyri og greiðslur með rafrænni undirskrift
- 2016
- Almenni lífeyrissjóðurinn valinn besti opni lífeyrissjóður í Evrópu af fagtímaritinu Investment Pension Europe. Að auki var Almenni valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu meðal þjóða með færri en milljón íbúa
- 2017
- Almenni valinn lífeyrissjóður ársins af fagtímaritinu European Pensions
- 2017
- Almenni opnar nýja vefsíðu sem virkar fyrir allar borð- og spjaldtölvur sem og snjallsíma. Meðal nýjunga er netráðgjafi sem alltaf er á vaktinni og svarar öllum algengustu spurningum sjóðfélaga
- 2019
- Almenni valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu meðal þjóða með færri en milljón íbúa af fagtímaritinu IPE.
- 2020
- Almenni valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu meðal þjóða með færri en milljón íbúa af fagtímaritinu IPE.
- 2021
- Almenni valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu meðal þjóða með færri en milljón íbúa af fagtímaritinu IPE.
- 2021
- Almenni opnar lánavef til að einfalda aðgengi sjóðfélaga að upplýsingum um sjóðfélagalán og aðgerðum sem tengjast þeim.
- 2022
- Almenni opnar endurbættan sjóðfélagavef með enn betri upplýsingum og stafrænum samskiptaleiðum.